miðvikudagur, maí 12, 2004
FLUTT Á
folk.is/kiddaemma
folk.is/kiddaemma
mánudagur, maí 10, 2004
Sólin bíður mín á Spáni. Hún sendi mér fax í gær og spurði hvort ég væri ekki að fara að láta sjá mig hjá henni. Ég sagði henni að ég væri sko alveg á leiðinni, bara 18 dagar. Vá hvað mig hlakkar til. Það hefur verið svo mikið vesen í undirbúningnum á þessari ferð að það er ekki eðlilegt skal ég segja ykkur. Til að mynda þá hækkaði ferðin hjá okkur um 50. þúsund án þess að við vissum nokkuð um það. Ég var sko ekkert ánægð með það og þrammaði upp í Terra nova með tengdó í morgun til að fá botn í þetta allt saman. Þá kom í ljós að það var vitlaust verð í bæklingnum og það var sem sagt lagað að haft samband við viðskiptavini sem voru búin að bóka. En sem betur fer á gleymdust við og við vorum búin að borga staðfestingagjaldið þannig við fáum okkar verð á þessu verði sem við vildum. Auðvitað. Þannig nú er allt vesen búið, LOKSINS, og ekkert annað en að bíða eftir að maður komist upp í flugvél......
Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Sigurjón var að keppa á lau.kvöldið og það gékk nú bara ágætlega. Unnu 3-2. Styttist í að móti byrji. Þá verður nóg að gera í bolta.
Dagurinn í dag verður pínu lengri en flestir dagar. Skipti um vakt við Ernu og er á seinni í dag, svo er fundur kl 19 strax eftir vinnu. Þannig maður verður ekki komin heim fyrr en um níu leytið.
Var að fá nýtt eyrnatól fyrir símann hér í vinnunni og það er ekki að virka. Annað hvort er eyrað á mér svona lítið eða að tólið er allt of stórt. Eyrað er alla vega ekki að meika þetta þessa daganna........
fimmtudagur, apríl 29, 2004
Arnar hló mikið af mömmu sinni í morgun. Það var mikill asi þegar við vöknuðum. Vöknuðum frekar seint og Sigurjón og Björgvin hentust í föt og út og ég og Arnar fórum líka á fætur því ég þurfti að vera á fyrri vakt í dag. Hentumst í föt, fengum okkur að borða og út. Þetta er nú smá rúntur sem við förum alla morgna þannig við þurfum alltaf að leggja snemma af stað. Og enn fyrr núna því við þurftum að fara í vinnuna til Sigurjóns áður en leiðin lá í leikskólann. Arnar vildi að sjálfsögðu fara inn með Sigurjóni en það var ekki tími til þess núna þannig við brunaðum af staði í leikskólann. Ég var eitthvað að hugsa mikið á leiðinni og rankaði ekki við mér fyrr en fyrir utan Kringluna og fattaði þá að Arnar var enn með mér í bílnum. Hann var nú alveg til í að vera bara í vinnunni með mér. En við tókum fína U-beygju og brunuðum í leikskólann enda mín orðin sein í vinnuna og Arnar hló allan tímann. Mjög fyndið :)
Annars verður þetta bara fínn dagur. Fór að vinna núna um 9 og fer svo á námskeið niðrí aðalbanka kl 14 í dag. Fínt að komast svona frá í smá tíma.
Fór að horfa á Sigurjón og BR keppa á þri.kvöldið, gekk ekki vel í þetta sinn þannig við skulum ekkert vera að tala um það núna. En ég hitti Davíð Rúnars, hann var á æfingu áður en strákarnir áttu leik. Alltaf gaman að hitta gamla skólafélaga.
þriðjudagur, apríl 27, 2004
EINN MÁNUÐUR ÞANGAÐ TIL ÉG Á AFMÆLI OG STÍG UPP Í FLUGVÉL TIL SPÁNAR!!
Smá breytinga á ferðafélögum í þessa ferð. Upphaflega ætluðum við að fara 3 pör en núna er eldri systir Sigurjóns komin í staðinn fyrir einn strákinn og það er bara gott mál, við stelpurnar munum því ráða alfarið þessari ferð, ekki slæmt :) Við getum varla beðið en þetta styttist óðum......
Sendi Ásdísi einn trúð af því hún á afmæli í dag. Til hamingju með daginn :)
mánudagur, apríl 26, 2004
Hvað er í gangi með tölvuheiminn í dag? Er það bara ég eða????
Bloggið neitar að birta það sem ég vil að það birtir og svo kemst ég ekki inn á msn, einmitt þegar ég þarf á því að halda. Dagurinn er því ekki eins góður og ég hélt að hann yrði. En ég læt nú ekki eitthvað tölvu vesen skemma góða skapið. Er það ekki bara bull???

Við skulum aðeins átta okkur á því að ég er enn ónýt eftir djammið á laugard.kvöldið. Það er langt síðan ég hef átt svona langt og gott djamm. Dagurinn byrjaði á því að boltafélagar Sigurjóns hittust á Shooters í Kópavogi. Vinur hans var að taka við rekstrinum þannig það var tilvalið að horfa á þennan ömurlega leik........ að mínu mat, ekki Sigurjóns. En nóg um það. Lalli var nú ekkert á því að sleppa okkur út nema við lofuðum að koma aftur um kvöldið og fá okkur einn öl. Það var því ákveðið að hittast aftur um kvöldið á Shooters. Eftir þennan leik ákváðum við að fara og fá okkur að borða og stefnan tekin á Stælinn. Mér fannst það tilvalið því ég vissi að Hugrún væri að vinna þar og bjóst að sjálfsögðu við því að hún yrði að vinna. Ég sendi henni sms og hún svaraði ekki þannig ég var alveg 100% viss. En vitið menn, að sjálfsögðu var hún að vinna í Skipholtinu. Ekki sátt en maturinn góður eins og alltaf og við fórum södd heim.
Día og Valdís komu heim um átta leytið og það var hálfgerð snyrtistofa inn á bað, þvílíkt samstarf þar í gangi. Sigurjón leist nú ekki á þetta, komst ekki í sturtu fyrr en seint og síðar meir. Við fórum á Shooters um ellefu leytið og drykkjan byrjaði. Við skulum bara segja að mín var orðin góð um 2 leytið, örugglega fyrr og var ekkert á leið heim þannig við tókum stefnuna niðrí bæ. En það var ein stúlka sem var ekki alveg að höndla öll þessi 8, að mig minni, skot sem við tókum og hún varð eftir þegar farið var. En ég lét það nú ekki stoppa mig. Fórum á Gaukinn og svo á Amsterdam. Kvöldið og nóttin var æðisleg. Eftir bæinn, um kl 7, ákváðum við, eða bara ég,ok, að kíkja í partý. Vinur Lalla, skaggi, keyrði okkur upp í Breiðholt, en maginn var ekki sammála þessari bílferð og gerði því uppreisn þegar út var komið. Þá ákvað Sigurjón að taka málin í sínar hendur og halda heim á leið. Góð ákvörðun. Dagurinn í gær var frekar slæmur, get ekki borðað, ekki sofið, ekki legið, ekki setið og bara ekki neitt..... Og núna er ég í vinnunni og vildi að ég hefði vatnstank undir borði. Gæti klárað hann á mjög stuttum tíma :/
þriðjudagur, apríl 20, 2004
:(
Mín var búin að plana æðislegan laugardag, en auðvitað gekk hann ekki upp. Ég á sem sagt dekurdag í Baðhúsinu sem ég fékk í konudags- og afmælisgjöf frá dúllunni minn og ég ætlaði að nota laugardaginn í það á meðan ég er barnlaus og Sigurjón að vinna. Eftir að hafa reynt að ná í Baðhúsið í þó nokkurn tíma þá fékk ég að vita það að það er afmæli hjá þeim á laugardaginn og þá er ekki opið hjá þeim á snyrtistofunni. Ég hélt að ég mundi fara að gráta :( Þannig ég þarf að bíða í viku kannski tvær vikur áður en ég get notað þennan dekurdag minn. Ekki sátt!!!!!

JÆJA JÆJA
Sit hér við mitt skrifborð í KB banka í Kringlunni. Hef nú nóg að gera en ákvað að rita eina eða tvær línur eða svo.... komin tími til. Ég verð nú að fara að setja upp þetta blessaða net í fartölvunni minni, þá verð ég nú duglegri að skrifa á kvöldin þegar ég er kominn heim. Hef engann tíma til þess hér :)
Annars er bara allt gott að frétta. Helgin gekk sinn vana gang. Björgvin var hjá okkur um helgina og þeir fjörugir eins og alltaf. Sigurjón var að keppa á lau og sun þannig þetta var hálfgerð fótbolta helgi og þeim fannst það ekki leiðinlegt littlu guttunum. Þeir unnu báða leikina, man ekki hvernig fyrri fór en leikurinn á sun fór 10-4. Mjög góð úrslit áður en deildin byrjar.
En leikurinn endaði nú ekki vel fyrir Gumma greyið. Hann fékk eitthvað í bakið um miðjan seinni hálfleik og fór útaf og gat ekki hreyft sig. Hann endaði upp á slysó eftir leikinn og þá kom í ljós að hann hafði rifið vöðva og það hafði blætt inná. Þannig hann var sprautaður niður og dælt í hann dópi og verður orðin góður eftir vikur, 10 daga. Hver segir að fótbolti sé hættulegur, bull......
Svo styttist í það að við förum út, mánuður og 7 dagar :) mmmmmmm það verður æðislegt..........
Tók eitthvað kaffipróf.... allt er nú til
þetta var niðurstaðan

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Espresso!
30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
Espresso!
Þú ert með eindæmum sjálfsöruggur einstaklingur. Þú ert vandvirkur og samviskusamur en lætur það þó stundum eftir þér að fresta verkefnum til morguns. Þú ert á sífelldri hraðferð án þess þó að það hái þér á nokkurn hátt.
Þú ert 30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.
Svo allir muna að kíkja á mig ef þið eruð að þvælast í Kringlunni :) Alltaf gaman að fá heimsókn!! En núna ætla ég í kaffi

miðvikudagur, apríl 07, 2004
Ef margir halda að ég sé dáin þá er það eiginlega bara satt..... ég er alveg að drepast.... það eina sem heldur í mér lífi þessa dagana er að það er að koma langt frí........................................
Bloggarar
- Hugrún vinkona
- Binni Bjarka
- Þura systir
- Inda Hrönn
- Día
- Kolla og Raggi
- Erla vinkona
- Guðný Ebba
- Ingó
- Kiddi Blö
- Gudny Erla
- Marsibil
- Kristín I.
- Lilli brósi
- Samstarfsfélagi Ester
- Ausan
- Drífa
- Ásdís
- Kristín Birgis
- Katla
- Hrefna hans Þórðar
- Heba Rún
- Margrét Ágústa
- Linda Ómars
Krækjur
- Húnahornið
- Halla
- Björgvin Tristan
- Ræktin mín
- Man Utd
- Skólinn minn
- Betra.net
- Siggi Guð
- Skólinn hennar Þuru systir
- Liðið hans Sigurjóns